Bandýfélag Kópavogs

  BK er komið með nýja síðu. Vinsamlegast uppfærið hlekki.

miðvikudagur, mars 29, 2006
 
Árósamót.

Nú vill svo skemmtilega til að það stefnir í að við förum til Árósa í maí. Mótshaldarar eru reiðubúnir að koma til móts við okkur í leikmannamálum og lána okkur leikmenn eftir þörfum.

Eins og staðan er núna þá þurfum við að fara að staðfesta komu okkur og greiða einhver gjöld.

Takk fyrir.
  - posted by Bynni

þriðjudagur, mars 28, 2006
 
Kronstrand á Íslandi.

Góðir bandýiðkendur það gleður mig að tilkynna ykkur að ég hefi tekið að mér umboð fyrir bandývörur frá sænska fyrirtækinu Kronstrand.

Vörurnar má sjá á síðu þeirra
  • Kronstrand.com


  • Þess má geta að fyrsta sendingin er komin til Íslands og verður tekin upp einhvern tíman á næstu dögum.

    Verðlisti verður birtur fljótlega.

    Takk fyrir,
    Bynni.
      - posted by Bynni

    miðvikudagur, mars 22, 2006
     
    Sæl,

    það er allt að gerast....búið er að stofna Bandýfélag Kópavogs (BK) og erum við því loksins að æfa í félagi. Húrrrra fyrir því! Því kemur að því bráðum að þeir sem rétt eiga á íþróttastyrk frá stéttarfélögum geti fengið endurgreitt....en það er verið að vinna í því.
      - posted by eva

    þriðjudagur, mars 21, 2006
     
    Æfingar falla niður...

    Æfingar falla niður miðvikudaginn 29. mars og sunnudaginn 2. apríl 2006.

    Ég minni alla sem kylfu geta valdið á landsliðsferðina! Þetta er einstakt tækifæri til að verða fulltrúi Íslands í alþjóðlegri bandýkeppni. Það þarf ekki að taka fram að þetta er tækifæri til að skrá sig í bækur íslenskrar bandýsögu.

    Takk fyrir.
      - posted by Bynni

    mánudagur, mars 13, 2006
     
    Hæ!
    Við erum að skoða möguleikann á því að setja saman landslið til að taka þátt í helgarmóti í Danmörku. Til að koma með slæmu fréttirnar strax þá bendi ég á að mótið er á óhentugum tíma fyrir flest skólafólk. Þáttakendur fara út 11. maí og koma til baka 14. maí sem lendir væntanlega á próftöflum flestra skóla.

    Kostnaður við mótið, utan flugs er:
    1600 dkr. fyrir liðið
    1000 dkr. trygging
    300 dkr. á þátttakenda, innifalin gisting(fimmtudags til sunnudags), morgunmatur. Ekki nóg með það þá er boðið í kvöldmat og veislu laugardagskvöldið!!
    ca. 560 dkr. fyrir lest fram og tilbaka frá Árósum á mann.

    Þ.e. 860 dkr. + (2600/fjöldi leikmanna) dkr. á hvern leikmann + flug til Danmerkur.
    Ætti semsagt að vera vel yfirstíganlegur kostnaður fyrir þá reynslu og skemmtun sem það er að fá að spila okkar ástkæru íþrótt fyrir hönd Íslands á erlendri grundu. Svo ekki sé nú tekinn fram sá heiður að komast í fyrsta bandýlandslið Íslands!

    Stutt um mótið:
    Mótið er haldið í Árósum og heitir Marselisborg Cup. Þetta er stærsta mót sinnar tegundar í Danmörku og taka ca 500 manns þátt frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
    Eins og fram hefur komið er komudagur 11. maí, leikið verður 12. og 13. maí auk þess sem veisla og hófleg drykkja verður 13. maí og svo lýkur gleðinni þann 14. maí þegar haldið verður heim til okkar ástkæra og ylhýra Íslands.
    Mótskipulag:
    Leikið er á 4 völlum, og leiktími hvers leiks er 2*15 mín.
    Farið verður eftir opinberum reglum IFF, þær reglur má nálgast á ensku á vef Bandýnefndarinnar: bandynefnd.blogspot.com eða á www.floorball.org. Einnig gæti verið að þær náist á íslensku fyrir mótið, en það kemur í ljós. Nauðsynlegt er að ALLIR kunni reglunar, bæði þeir sem veljast til fararinnar og við hin sem fylgjum þeim í anda.

    Mótstjórinn krefst þess að hvert lið innihaldi að minnsta kosti 10 manns auk markmanns, en fjöldi í liði er allt að 20 manns og því ætti að vera raunhæfur möguleiki fyrir nær alla sem áhuga hafa á að fara að komast með.

    Þeir sem áhuga hafa og komast á þessum tíma eru vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram við Bryngeir, hér eftir kallaður Bynni, formann landsliðsnefndar við fyrsta mögulega tækifæri. Og ef þörf er á einhverjum viðbótar upplýsingum má senda fyrirspurn á Bynna eða undirritaðann.
    Bynna email: bryngeir(at)hi.is

    Kær kveðja,
    Oddgeir Guðmundsson
    formaður Bandýnefndar ÍSÍ
    email: oddgeir(at)hi.is
    s: 691-0481
      - posted by Oddgeir

    Bandý bætir, hressir og kætir!

    Bandýfélag Kópavogs er með æfingar í­ Smáranum (sambyggt Fí­funni) á:
    sunnudagskvöldum kl. 21:00 - 23:00
    miðvikudagskvöldum kl. 21:00 - 23:00


  • Exel vörur
  • Kronstrand
  • Canadien vörur

  • Málsfróðvitnun dagsins:


    Bandýnefnd ÍSÍ
  • Bandýnefnd ÍSÍ

  • Meðlimir
  • Bandýfélag Kópavogs
  • Bynni
  • Einar
  • Ella
  • Eva Hrund
  • Frikki
  • Gunni
  • Haffi
  • Halli
  • Halli litli
  • Hildur Jóna
  • Hildur Jóns
  • Hlynur
  • Linda
  • Markús
  • Oggi
  • Oddur
  • Sebastian "The Bruno"
  • soffí­a
  • Sveinbjörn
  • Þessi hlekkur er til leigu

  • Önnur bandýfélög
  • Bandýmannafélagið Viktor
  • Trukkarnir

  • Bandýsíður
  • Alþjóðabandýsambandið
  • nsw floorball
  • Youth startup kit
  • Reglur leiksins

  • ARCHIVES
    október 2003 / nóvember 2003 / desember 2003 / janúar 2004 / febrúar 2004 / mars 2004 / apríl 2004 / maí 2004 / júní 2004 / júlí 2004 / ágúst 2004 / september 2004 / október 2004 / nóvember 2004 / desember 2004 / janúar 2005 / febrúar 2005 / mars 2005 / apríl 2005 / maí 2005 / júní 2005 / júlí 2005 / ágúst 2005 / september 2005 / október 2005 / nóvember 2005 / desember 2005 / janúar 2006 / febrúar 2006 / mars 2006 / apríl 2006 / maí 2006 / júní 2006 / ágúst 2006 / september 2006 / október 2006 /


    Powered by Blogger