Bandýfélag Kópavogs

  BK er komið með nýja síðu. Vinsamlegast uppfærið hlekki.

föstudagur, október 20, 2006
 
Hún á afmæli í dag :)
Hver er hún?
  - posted by Sveppi

föstudagur, október 13, 2006
 
Bandýfélag Kópavogs er komið með nýja heimasíðu á slóðinni http://bk.bloggar.is. Vinsamlegast uppfærið hlekki. Annars hefur gjaldkeri ákveðið að æfingagjöld fyrir þessa önn verði 16.000 kr. Vinsamlegast greiðið sem fyrst inn á 0525-14-604806, kt.620306-0530 og munið að hafa nafn sem tilvísun. Munið einnig að þið getið fengið nótu fyrir gjöldunum til að fá íþróttastyrk frá vinnustað eða stéttarfélagi.
  - posted by Hafsteinn

sunnudagur, október 08, 2006
 
Íslandsmeistaramótið - lokaorð!
Bandýnefndinni langar að þakka öllum sem tóku þátt á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór í gær 7. október.
Okkur fannst mótið takast ótrúlega vel og liðin sem tóku þátt voru mjög sterk. Við vonum að einhverjir bjóði sig fram í mótsnefnd fyrir mótið á næsta ári til að skipulagningin geti orðið sem best svo að öll skipulagning og framkvæmd verði ekki á höndum svona fárra aðila eins og gerðist núna.
Það var gaman að sjá ný lið koma svona sterk inn í keppnina sem sýnir að það verður líklega enn meiri harka á næsta ári. Liðin verða því að vera dugleg að æfa sig fyrir næsta mót. Við hvetjum alla að fara að skrá liðið sitt formlega því samkvæmt reglum ÍSÍ þá mega aðeins þeir sem eru skráðir taka þátt á Íslandsmeistaramóti innan þess. Við leyfum okkur að líta framhjá þessari reglu á meðan íþróttin er að festa sig í sessi.

Verðlaunasætin voru:
1. sæti: Hamrarnir frá Akureyri
2. sæti: Bandýmannafélagið Viktor
3. sæti: Swingers
  - posted by soffia

föstudagur, október 06, 2006
 
ATHUGIÐ - breytingar á fyrirkomulagi Íslandsmeistaramótsins!!
Í stað 10 liða eru nú 8 lið sem keppa um titilinn eftirsótta.

Riðill A
Akademia/Trukkar
BK
Langhundar
UIA

Riðill B
Boltastrákarnir
Hamrarnir
LBHI
Viktor

Riðill A mætir klukkan 10:30
Riðill B mætir klukkan 12:30 ATH breyttan tíma

Vegna breytinga verða úrslitin spiluð þegar seinni riðillinn hefur lokið keppni. Áætluð lok B riðils er á milli klukkan 15 og 16.
  - posted by soffia

þriðjudagur, október 03, 2006
 
Íslandsmeistaramótið
Tilkynning frá nefndinni - með fyrirvara um breytingar

Dregið hefur verið í riðla og er skiptingin eftirfarandi:

Riðill A
Akademían
BK
Langhundur
Trukkarnir
UIA

Riðill B
Boltastrákarnir
Hamrarnir
LBHI
Nafnlaust-lið
Viktor


Riðill A mætir klukkan 10:30 - 15:00
Riðill B mætir klukkan 14:30- 19:00

Fjögra liða úrslit verða haldin á sunnudeginum
  - posted by soffia

föstudagur, september 29, 2006
 
Ágæta fólk sem sótti dómaranámskeiðið í Laugardalnum í fyrra,

eins og mörg ykkar vita verður Íslandsmótið í bandý haldið helgina 7. - 8. okt og kemur það í hlut einhverra okkar sem sóttum námskeiðið að dæma leikina á mótinu. Þar sem víst má telja að flest ykkar séu orðin ansi ryðguð í reglunum og dómarafræðum almennt efnir dómaranefnd bandýnefndar ÍSÍ til sérstaks dómarafundar fimmtudaginn 5. október. Fundurinn verður haldinn í sama sal og námskeiðið var í á sínum tíma og hefst kl. 18:00. Hann stendur í mesta lagi í þrjá tíma. Á fundinum verður farið yfir ýmsar reglur og túlkanir á þeim auk þess sem línur verða lagðar fyrir helgina. Aðeins þeim sem mæta verður leyft að dæma á mótinu nema sérstakar aðstæður komi til sem ræða þarf við dómaranefnd fyrir 5. okt.

Kveðja,
Tomasz H. Pajdak, formaður dómaranefndar
  - posted by soffia

fimmtudagur, ágúst 17, 2006
 
Stelpubandý
Bara að auglýsa að stelpubandý verður aftur í vetur og nú ætlum við að reyna að troða okkur í Fífuna. Ef við erum ekki mjög margar þá mega strákar (sem eru ekki vangefið góðir) mæta líka með sérstöku leyfi ;)
  - posted by soffia

Bandý bætir, hressir og kætir!

Bandýfélag Kópavogs er með æfingar í­ Smáranum (sambyggt Fí­funni) á:
sunnudagskvöldum kl. 21:00 - 23:00
miðvikudagskvöldum kl. 21:00 - 23:00


  • Exel vörur
  • Kronstrand
  • Canadien vörur

  • Málsfróðvitnun dagsins:


    Bandýnefnd ÍSÍ
  • Bandýnefnd ÍSÍ

  • Meðlimir
  • Bandýfélag Kópavogs
  • Bynni
  • Einar
  • Ella
  • Eva Hrund
  • Frikki
  • Gunni
  • Haffi
  • Halli
  • Halli litli
  • Hildur Jóna
  • Hildur Jóns
  • Hlynur
  • Linda
  • Markús
  • Oggi
  • Oddur
  • Sebastian "The Bruno"
  • soffí­a
  • Sveinbjörn
  • Þessi hlekkur er til leigu

  • Önnur bandýfélög
  • Bandýmannafélagið Viktor
  • Trukkarnir

  • Bandýsíður
  • Alþjóðabandýsambandið
  • nsw floorball
  • Youth startup kit
  • Reglur leiksins

  • ARCHIVES
    október 2003 / nóvember 2003 / desember 2003 / janúar 2004 / febrúar 2004 / mars 2004 / apríl 2004 / maí 2004 / júní 2004 / júlí 2004 / ágúst 2004 / september 2004 / október 2004 / nóvember 2004 / desember 2004 / janúar 2005 / febrúar 2005 / mars 2005 / apríl 2005 / maí 2005 / júní 2005 / júlí 2005 / ágúst 2005 / september 2005 / október 2005 / nóvember 2005 / desember 2005 / janúar 2006 / febrúar 2006 / mars 2006 / apríl 2006 / maí 2006 / júní 2006 / ágúst 2006 / september 2006 / október 2006 /


    Powered by Blogger