Bandýfélag Kópavogs
BK er komið með nýja síðu. Vinsamlegast uppfærið hlekki.
Mig langar bara til að þakka ykkur fyrir stórskemmtilegt mót um síðustu helgi. Við verðum að endurtaka það og hafa það ennþá stærra að ári. Held við ættum kannski að draga úr áfengisneyslu í næsta sinn til að hafa það enn eftirminnilegra! Hvað á svo að gera um Verslunarmannahelgina? Er um að gera að fjölmenna einhversstaðar í bleiku bolunum??:D
- posted by soffia
Það tóku kannski ekki allir eftir því en nokkrir úr klúbbnum voru með upptökuvél í ferðinni til Egilsstaða og tóku upp myndir af meðlimum Barbie fullum, asnalegum og þreyttum. Þessar myndir verða svo klipptar til, öll ummæli slitin úr samhengi og svo verður þetta allt notað í fjárkúganir! HAHAHAHAHA! Engin miskunn! HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!
- posted by Hafsteinn
Hvar var ég eiginlega um helgina? Ég er allur stirður og slappur! Hvað gerðist eiginlega?!
- posted by Hafsteinn
Nú eru allir líklegast orðnir spenntir fyrir að fara austur um helgina. Ferðin gæti tekið um 8 tíma og því er ekki úr vegi að hafa eitthvað að gera á meðan. Hér koma hugmyndir að nokkrum leikjum:
Telja steinana
Telja stikurnar
Telja trén
Telja kýrnar
Þessir leikir geta stytt lúnum ferðalöngum stundirnar í bílferðum. Gott er að skrá niður talningar jafnóðum til að eiga til minningar.
Svo þarf náttúrulega að geta haft skemmtileg lög til að syngja með í ferðinni. Hér koma nokkrar tillögur:
Focus - Hocus Pocus
Knorkator - A
Einhver svíi & after shave - Bandy bandy
R.Á.Þ. - Áfram, áfram bílstjóri
Sigríður Níelsdóttir - Steinaldarfantasía
Það er skylda fyrir hvern meðlim Barbie að kunna þessi lög utan að.
- posted by Hafsteinn
Farþegalisti Bynna.
Til að hafa þetta mjög einfalt þá verða eftirfarandi farþegar í mínum bíl ;
Hlynur, Sveinbjörn, Hildur og Tedda.
Post scriptum ; EKKI TAKA MIKINN FARANGUR!
- posted by Bynni
Barbie eignast nýjan kærasta
Það reiðarslag dundi á dúkkuunnendum fyrr á árinu að fregnir bárust af sambandsslitum Barbie og Ken. Þessi frægasta dúkka heims hafði átt í ástarsambandi við Ken í ein 40 ár þegar Bandýklúbburinn, sem kallast Barbie, tilkynnti að parið hefði ákveðið að skilja. Illar tungur sögðu þó sambandsslitin einungis bragð hjá markaðsfræðingum Bandýklúbbsins þar sem sala á Barbie-dúkkum hafði fyrr á árinu dregist saman um ein 70%.
Það fregnaðist svo í vikunni að Barbie væri komin með nýjan mann upp á arminn. Sá heppni heitir Blaine og er bandýmaður frá Ástralíu.
Barbie fékk hjálp almennings við að velja kærastann en yfir tvöhundruð milljónir manna greiddu atkvæði í kosningu sem Bandýklúbburinn stóð fyrir á heimasíðu sinni á dögunum. Blaine varð hlutskarpastur í kosningunni og er parið að sögn mjög hamingjusamt.
Barbie, sem heitir fullu nafni Barbie Millicent Roberts, leit fyrst dagsins ljós árið 1959. Mismunandi útgáfur af henni eru fáanlegar í yfir 150 löndum víðsvegar um heiminn og er vinsælasta útgáfan að sjálfsögðu með bandýkylfu í hönd.
- posted by Oddgeir
Bandý bætir, hressir og kætir!